Nikko NA-2090

Nikko ND-2090

Fínn og flottur magnari frá Nikko.   Nikko átti stutta sögu en framleiddu býsna góða tunera sem enn eru eftirsóttir. 

Dálítið ljósashow við Input selectorinn.    Skyldleiki við fyrri ára Pioneer innvols sjáanlegt.

Þessi þurfti lóðningavinnu við útgangana/driver-rásirnar.           Skipta varð um þétta í spennustýringu og hreinsa þurfti í skiptara og stilli.

Gekk vel

Útgangarnir hér eru:

  • 2SC2525 x2
  • 2SA1095 x2

Maggi

Quad ESL-57 Electrostatic hátalari

Hér var ég búinn að skipta um dust coverin á bassapanelunum

Þessir eru alveg í sérflokki.   

Smíðaðir frá 1957-1985    yfir 54 þús stykki.    Nánast óbreyttir allan þann tíma.   Það segir eitthvað um framsækni hönnunarinnar.

Þeir eru alfarið electro-statískir.  Engir seglar eða resonance box eða kassi.  Bara háspennugjafi, háspennu-hátalaraspennir og statiskar filmu-membrur sem titra.    Hann skiptist í einn þrefaldan treble panel og tvo bassapanela.   Opinn að aftan en með dempandi filter þar,  sérstaklega aftan við treble panelinn.  Algerir gimsteinar.

Vocalarnir eru á upphækkuðum gæðum.

Það er ekki fyrir hvaða magnara sem er að ráða við þessa.  Eiginlega verður það að vera lampamagnari.   Það er út af Inngangs-Impedance þeirra.    Hér má heldur ekki keyra upp í afli.

Maggi