Pioneer SX-424

Pioneer SX-424

Snotur Útvarpsmagnari frá Pioneer. 

Flottur útvarpsskali í bláum tónum.  FM móttakan næm og góð.

Rúmt um alla íhluti og haganlega fyrir komið.

Ekki kraftaköggull en hljómar ágætlega.    Hér þurfti að yfirfara aðal tíðnistilli-þéttinn og alla skiptara og stilli.   Mjög fínn eftir það.

Útgangarnir hér eru:

  • 2SC1061 x4

M. 

Pioneer PL-15D

Pioneer PL-15D

Reimdrifinn Plötuspilari frá Pioneer.   Einn af þessum sem duga endalaust.    Ef passað er upp á að setja sitthvorn olíudropann í sérstaka leiðara við mótorinn – einu sinni á ári,  gefst mótorinn aldrei upp.

Hér þurfti að skipta um reimina, endurnýja og hreinsa feitina í spindillegunni og yfirfara antiskating.

Íhlutir í Pioneer PL-15D:

M.

Pioneer QA-800A

Flottur fjögurra rása magnari frá Pioneer.     Hér þurfti að lagfæra spennureguleringu,  spennustilli.    Skipta um þétta þar.  

Það sem erfiðast var með þennan, voru inngangstransistorarnir á Tone ctrl einingunum.  Hér eru tvöföld tone-stilli – 4 kanalar.   Gömlu transistorarnir voru farnir að suða illa.  Bilanagreiningin felur í sér að kæla eða hita þá.   Skipti um þá (4) og eftir það var hann í lagi.

Þessi er frá þeim tíma sem menn voru með alla útgangana ( transistorana ) sömu gerðar og notast var við rýmdarstóran þétti á hátalaralögninni.   Hljómur í þannig mögnurum er oft mjúkur og/eða þungur.    Sumum líkar það vel. 

Það kom mér dálítið á óvart hversu vel hann opnaðist upp, hljómlega, við viðgerðina.

Maggi

Íhlutir í Pioneer QA-800A

Útgangarnir hér eru:

2SC793 x 8