Loran-C

Hér sjást mannvirki á Gufuskálum, mynd tekin úr mastrinu – á leiðinni upp.   

Loranstöðin Sandur, (Lorsta Sandur) á Gufuskálum voru hluti af Loran-C kerfi Bandaríkjamanna sem spannaði yfir Norður-Atlantshafið frá Grænlandi og hluta af Evrópu 

Hér langar mig að eiga punkta um Loran-C staðsetningarkerfið sem leyst var, víða, af hólmi með GPS.   Þar er ég að tala um rekstur Bandaríkjamanna á Loran-C

Fremst vinstra megin er Duplexinn, þar sem við bjuggum lengst af,  síðan skemman – þar var slökkvistöðin okkar með handvagni, lúðri og hvaðeina.  Litli glugginn vinstra megin er þar sem hún var.   Allir varahlutir í mastrið voru geymdir í skemmunni.  t.d.  komplett einangrunarfóturinn sem mastrið situr á,  auk einangrara, beacon ljósa og glussatjakka til að lyfta undir mastrið!

Grunnarnir ofan við veg eru undan skemmu og gömlum messa, sem brann á allra fyrstu árunum,  og voru notuð af verktökunum, (IPC – íslenskir aðal-verktakar) sem reistu húsin.   Þarna voru krakkar stundum á skautum.

Síðan komu blokkirnar,  fremst er elsta blokkin sem nú er horfin,  miðblokkin og svo nýja eða Nato blokkin.   Fyrir miðju er þvottahús / geymslur auk kyndihúss – þar framanvið er „Messinn“  samkomuhúsið okkar.   Þar voru þorrablót, afmæli,  fermingar og kvikmyndasýningar á fyrri árum og komu stundum filmur af vellinum.  Þá var krökkum af Hellisandi smalað í bíó með Gufuskálakrökkum.   

Þar framan við og hérna megin vegar, er gestahúsið.  Þar gistu Officerar frá CG og önnur fyrirmenni í heimsóknum.

Síðan sjást olíutankarnir og græni hóllinn þar til hægri er vatnstankurinn.   Við vorum með prívat borholu uppi við Hríshól sem er uppi í hrauninu.

Svo sjáum við stöðvarhúsið.  Þar er, frá vinstri, fyrst að nefna bifreiðaverkstæðið – síðan vélasalurinn en restin af húsinu var undir búnað og lagera auk starfsmannaaðstöðu.  Mér sýnist glitta í „Sendabíl“ sem alltaf var til taks – vestan megin við stöðvarhúsið.

Þarna voru lengst af sólarhrings-vélavaktir. 

Mastrið sem sést á myndinni var gamalt Loran-A mastur sem notað var til að bera búnað til hlustunar á neyðarbátabylgjunni.  ( 2182 KHz )

Tóftirnar beint upp af því eru þar sem gamli Gufuskálabærinn stóð en hann hafði farið í eyði áður en framkvæmdir hófust hér.

Loftnetaraðirnar tvær ( Whip Arrays ) efst á myndinni, voru notaðar við móttöku á Loran-A merki. 

Myndin var tekin nokkrum árum áður lokað var.   Við bjuggum þarna og ég vann þarna í um 10 ár.

Loran stendur fyrir Long Range Navigation

Loran-C er landfræðilegt „ground based“ staðsetningarkerfi.     

LORAN-C kerfið    Her eru punktar sem ég hef sett saman og er í áframhaldandi vinnslu.

Tower Manual       Hér eru leiðbeiningar ef þú ætlar að reisa 412m hátt mastur…

Loranmen       Hér fann ég lista yfir starfsmenn á Gufuskálum og á Monitor stöðinni í Keflavík,  eitthvað sem Coast Guard átti

Langbylgjusendingar RUV á 189 kHz Aflagðar?     ég ekki alveg sáttur hér.