Efnismikill og vandaður plötuspilari frá Kenwood. Boddýið er nánast eins og marmari, er úr steyptu hörðu steinefni og þungur eftir því. Það sem er sérkennilegast við hann er mekanisminn sem lyftir arminum og tekur hann til baka eftir spilun. Segja má að hann sé trekktur upp með stóra handfanginu og það virkjað til að hreyfa arminn. Heilmikið glussasystem svo það gerist rólega. Ekki gert með hreyfingu plattans eins og lang flestir spilarar sem eru „Auto return“.
Harða efnið í boddýinu og þykka spónaplatan undir eru saman hönnuð sem titringsdeyfir.
Ég þurfti að rífa hann í spað, þar með talinn armurinn og legurnar þar undir. ( legukúlur 1mm í þvermál ) Hreinsaði spindilleguna.
Er með stillanlegan Bias sem ekki var algengt á þessum árum en maður þarf að prófa sig áfram til að stilla hann rétt eftir tegundum. Í raun þarf aðskilda REC og Play hausa til að stillanlegur bias komi að gagni. Þá heyrirðu breytingarnar strax og stillið er hreyft.