
Svona magnari kom til viðgerðar hjá mér.
Þá var hægt að kaupa ósamsetta og fylgdi þá þykk bók með hvernig maður á að bera sig að.
Það skiptir máli hvernig vírar liggja og hvort þeir eru snúnir td.
Þessi var með bilaða biasstýringu sem á endanum hefði eyðilagt alla útgangslampana. (Seleníum díóða) Sem betur fer slapp það til.
Ég er mjög ánægður með árangurinn og að rifja upp hversu hann hljómar vel!
Maggi

Hér er mynd af einum eins og af þessum sem ég kalla „Úlf í sauðargæru“. Kom til mín um daginn. Eigandinn var að taka til á háaloftinu og sá hann.
Þessi er nú búinn að vera hjá mér síðan í vor. Einhver var nú búinn að reyna að gera við hann en gafst upp. Ég þurfti að endursmíða stóru spennugjafaeininguna, skipta um prent og endurbyggja. Síðan var bilun í straumstýringum fyrir forstigin í kraftmagnararásunum, Erfið bilun í öðrum kanalnum og ég endaði á að laga display eininguna.