GX tengi bætast á Lagerinn

Nú nýlega vorum við að bæta á Lagerinn hjá okkur svo kölluðum GX tengjum.    Þetta eru vönduð tengi sem oft eru notuð við millitengingar við tæki eins og fyrir spennufæðingu og sést oft sem hljóðnematengi.  sem dæmi í CB talstöðvum.

Þessi tengi er hægt að fá í nokkrum stærðum og í mismunandi fjölda pinna. 

Númerin gefa til kynna þvermál snitteringarinnar

  • GX12 týpan er með 12mm snitt
  • GX16 er með 16mm
  • GX20 er með 20mm

Eru hér í Vefversluninni

Heathkit AA-50 Lampamagnari

AA-50 frá Heathkit

   Svona magnari kom til viðgerðar hjá mér.   

Þá var hægt að kaupa ósamsetta og fylgdi þá þykk bók með hvernig maður á að bera sig að.   

Það skiptir máli hvernig vírar liggja og hvort þeir eru snúnir td. 

Þessi var með bilaða biasstýringu sem á endanum hefði eyðilagt alla útgangslampana.  (Seleníum díóða)   Sem betur fer slapp það til.

Ég er mjög ánægður með árangurinn og að rifja upp hversu hann hljómar vel!

Maggi

Lenco B55 Plötuspilari

Hér er mynd af einum eins og af þessum sem ég kalla „Úlf í sauðargæru“.   Kom til mín um daginn. Eigandinn var að taka til á háaloftinu og sá hann.

Engin reim – heldur ekki direct drive.   Flott svissnesk nákvæmissmíð.

Ég er búinn að fara um hann höndum og nú spilar hann eins og engill.   Meira segja er í honum original pickupið og nothæf nál!    Þegar hún klárast skiptum við um pickup, því ekki fæst lengur í hann.

Maggi