Hér er mynd af einum eins og af þessum sem ég kalla „Úlf í sauðargæru“. Kom til mín um daginn. Eigandinn var að taka til á háaloftinu og sá hann.
Engin reim – heldur ekki direct drive. Flott svissnesk nákvæmissmíð.
Ég er búinn að fara um hann höndum og nú spilar hann eins og engill. Meira segja er í honum original pickupið og nothæf nál! Þegar hún klárast skiptum við um pickup, því ekki fæst lengur í hann.
Maggi

Þessi er nú búinn að vera hjá mér síðan í vor. Einhver var nú búinn að reyna að gera við hann en gafst upp. Ég þurfti að endursmíða stóru spennugjafaeininguna, skipta um prent og endurbyggja. Síðan var bilun í straumstýringum fyrir forstigin í kraftmagnararásunum, Erfið bilun í öðrum kanalnum og ég endaði á að laga display eininguna.
Við erum að fá svona til gamnis og prófunar.