Fisher ST-555 Hátalarar

Ég er kominn með par af þessum í viðgerð.  Hér er mynd sem ég tók af netinu.   Það þarf að skipta um foam í woofernum – yfirfara midrange og tweeter-a auk þess að skoða cross-over.

Þessir wooferar eru sérstakir að því leyti að þeir eru push-pull – nánast eins og tveir hátalarar sem sitja öndvert.    Annar togar meðan hinn ýtir og öfugt.

Þetta voru á sínum tíma nánast flaggskip framleiðandans og afar gaman væri að koma þeim í notkun.

Hvor um sig eru 55 Kg !    Maður hleypur þá ekki um koll amk. 

Maggi

Nýir dagar

Frúin fer stundum í afgreiðsluna

Þann 1. október sl. opnaði Magnús Hermannsson rafeindavirkjameistari og kerfisstjóri rafeinda- og  tölvuþjónustu í bílskúrnum

að Úthaga 13 Selfossi. Þessa ákvörðun tók hann í kjölfarið á uppsögn sinni þegar tölvudeild Árborgar var lögð niður þann 1. júlí sl. Magnús hefur víðtæka reynslu í rekstri á tölvukerfum og hefur m.a. starfað hjá Árborg, Árvirkjanum, Kögun Keflavík og við Lóranstöðina á Gufuskálum. Hann býr yfir mikilli þekkingu þegar kemur að lampagræjum og smíðar m.a. slíka magnara.

 

Lampa-gítarmagnari í viðgerð

Upplýsingar um það og fleira má finna á heimasíðu hans sem ber einmitt nafnið tubes.is. Hann mun bjóða uppá yfirfærslur á stafrænt form, s.s. vinyl, kassettur, ljósmyndir, slides, vhs, 8mm, miniDv og fleira. Einnig stendur til að bjóða uppá skýjalausnir hvað það varðar. Þá hefur hann mikla reynslu í viðgerðum á plötuspilurum, mögnurum og hvers kyns raftækjum. Hann er giftur Önnu Lindu Sigurðardóttur deildarstjóra Fjölmenningardeildar Vallaskóla sem er hans hægri hönd.    Auglýstur opnunartími er 9-16 virka daga og eftir samkomulagi. Síminn er 6997684. 

Í október er boðið uppá 20% afslátt af öllum yfirfærsluverkefnum sem koma inn.

Opið hús verður föstudaginn 14.10 kl. 16-19. Kaffiveitingar.

Anna Linda

Mælitæki DSO-TC2

DSO-TC2 Fjölnota mælitæki

Ég er að prófa svona mælitæki.   Kemur mjög vel út.

Þetta er Íhlutamælir fyrir transistora af ýmsum gerðum, díóður, Zenerdíóður, spólur og Þétta.    Afar nákvæm viðnáma-mæling.

Auk þess er þetta einföld sveiflusjá til að skoða audioform og digitalpúlsa. 

Svo er innbyggður PWM Modulator fyrir þá sem eru að leika sér með mótorstýringar og Switched Mode spennugjafa.

Flott græja sem líklega verður hér í sölu. 

Maggi