Radionette Kvintett Lampaútvarpstæki

Radionette Kvintett

Tæki eins og þetta, Radionette Kvintett Lampaútvarpstæki frá því um 1966-7 er búið að vera í viðgerð hjá mér og er nú komið í lag.   

Það er svo mikill sjarmi yfir þessum gömlu tækjum, sérstaklega ef þau komast í lag.    

Ég þurfti að þræða skalasnúrurnar báðar rétt upp.  Það er ekki einfalt mál í svona tækjum.  Tveir skalar og mekanísk kúppling!   Auk filterþétta í spennugjafa og óhreina skiptara.

Svona tæki ( og komandi úr viðgerð hjá mér ! )  finnast á minjasöfnum eins og hér

Maggi

Slides myndir

Við tökum slides myndir og skönnum yfir á stafrænt form. 

Slide rammi og filma

Slides myndir geta verið í ótrúlegum gæðum og upplausnin góð.    Oft er hitt algengara og ekki síst ef geymsla þeirra hefur ekki verið sem best.   Algengt er að sjá rispur og fingraför inni á þeim. 

Það rýrir samt ekki verðgildi þeirra sem þekkja til myndefnisins eða eru jafnvel hluti þeirra.  

Slides frá Kodak komu oftast í pappaformi og þá er gott að átta sig á hvort mynd er spegluð eða ekki þegar hún kemur úr skönnun.  

Ég man eftir að slidesmyndir á mínu bernskuheimili voru oftast þannig meðhöndlaðar að filmur í 6-mynda lengjum voru klipptar niður og raðað handvirkt í ramma.  Þetta var svona með Agfa og Fuji filmur.  Hvítur öðru megin og dökkur hinum megin.   Hjá okkur var raðað þannig að maður horfði rétt á myndina frá hvítu hiðinni.

Ég hef rekið mig á að slides myndir, í svona römmum, sem ég fæ til vinnslu – geta snúið allavega.     Þá þarf ég að skoða og yfirfara hvort klukka á vegg eða texti á bókarkili snúi rétt.   

Auk þessa get ég, að ákveðnu marki, afmáð augljósar skemmdir og hluta myndflatar. td ef mynd er að hluta yfirlýst.   ( Algengt með öftustu myndirnar á filmunum)

Þessi vinna er innifalin í verkinu.

Maggi