Yfirfærsla 8mm og Super 8mm kvikmynda

Til að skanna 8mm kvikmyndirFyrir nokkrum áratugum var vinsælt að taka kvikmyndir á 8mm formi.    Margir eiga ómetanlega gullmola minninga á þeim 

Fram til þessa hef ég þurft að vísa fólki annað sem er með 8mm kvikmyndir sem það þarf að fá skannað.

Nú erum við búin að festa kaup á skanna sem tekur 8mm og super8 kvikmyndir í yfirfærslur.  

Ætti að vera hjá okkur eftir tvær vikur.    Það verður spennandi að prófa.   Þessi græja tekur mynd af hverjum ramma og raðar síðan í MPEG video skrá sem hægt er að skoða í tölvum og sjónvörpum.    Um gæðin veit ég lítið en það skýrist við prófanir.

Fyrstu prófanir skila ásættanlegum niðurstöðum.    Hins vegar þurfum við að hafa í huga hversu smár hver rammi er og upplausn á filmum mismunandi.   Hver rammi á 8mm filmu er ekki nema  4.8 mm × 3.5 mm.   Heldur stærri á Super-8 filmum.    

Manni hættir við að bera gæðin saman við það sem okkur finnst eðlilegt í dag – en það er ekki sanngjarnt.

Svo eru þessar myndir í lit þannig að kornastærðin er talsverð. 

Við horfum framhjá þessum annmörkum því það er það sem er á þessum upptökum sem gefur gildið en ekki upptökugæðin.  

Maggi  

Vörulistinn á PDF

Það er til, á PDF formi, listi yfir allar þær vörur sem ég hef á Lagernum.    Mikið af framboðinu ræðst af vörum og varahlutum vegna verkstæðisins.

Þetta hef ég svona meðan ég er að smíða vef-verslunina og geri aðgengilegt.

Athugið að verð eru án VSK og staða getur hafa breyst frá því listinn var útbúinn.

Vörulisti 19 Maí 2024

Maggi

Upptökur á video

Nokkur atriði þegar video er tekið upp af tape.

Það þarf að gerast í rauntíma.

  1. Fyrst er spólan spiluð og keyrð inn á vinnslu-upptökuskrá eins og hún leggur sig.
  2. Fara handvirkt yfir hvort upptakan hafi heppnast og hljóðið sé í lagi. 
  3. Skoða hvort eyður séu á milli upptaka.    Þær klippi ég frá. 
  4. Rendera.   Það er þegar endanleg video-skrá er unnin upp úr vinnsluskránni.

Hjá okkur erum við með 2-3 upptökutölvur og eina sem sinnir renderingum.

Auk þess erum við með tvær gagnastæður (NAS box) til að geyma afurðirnar.

Upptökur sem verða til hjá okkur eru vistaðar í uþb. 4 vikur á gagnastæðum eftir að viðskiptavinur hefur sótt þær en síðan er upptökunum eytt.

Þetta er gert til öryggis ef eitthvað misferst við verkið eða beðið er um aukaafrit.

Maggi