Pioneer A-605R

Pioneer-A-605R

Stereo magnari frá Pioneer.   

Þeir sem taka kassahlífina af þessum og hafa í gangi á sama tíma verða að passa sig að á snerta ekki kæliplöturnar fyrir útgangana, því það getur verið yfir 90V DC spennumunur á þeim.   Ekki gott að leggja hendur yfir hann!    Dálítið sérstök útfærsla, finnst mér,  kannski einhver reiknaður sparnaður.

Það sem var að þessum var notkunarleysi og óhreinindi í stillum og skipturum.  Þurfti að stilla hvílustrauma og DC balans á útgöngum.

Það eru MosFet útgangar í þessum

  • IRF540 x2
  • IRF9540 x2

Maggi

 

 

Quad 22

Quad-22 formagnari

Quad 22 er formagnari til að keyra Quad II monoblock eða monoblock-ir.   Tekur straum og spennu frá þeim.

Afar flott og sérstök útfærsla á tónstillunum.   Það er hægt að stilla virkni Bass-Treble og þar með ráða brot-tíðninni.

Þessi gerð var í framleiðslu 1959-1967.   

Það er hreinn unaður að sjá handbragðið á innvolsinu hér. 

Quad-22 séð neðanfrá
Quad-22 séð ofanfrá

     

  • 2x EF86
  • 2x ECC83 / 12AX7

Sjá Quad II monoblock

Quad II Monoblock

Quad-II Monoblock

Meistarastykki frá Quad.  Var í framleiðslu frá 1953-1970 

Monoblock með 2x KT66, 2x EF86 og GZ32 afriðli.

Hannaður með Quad 22 formagnaranum.

 

Í honum eru:

  • 2x EF86
  • 2x KT66
  • 1x GZ34

Svona á ég!  Alveg original

Maggi