TEAC A-3340S

TEAC A-3340S

Glæsilegt og vandað 4-rása Reel-Reel segulbandstæki frá Teac.   

Hægt að taka upp fjórar (4) rásir á tape í eina átt eða 2+2 í sitthvora áttina.    Stórir og flottir Analog mælar. 

Þetta var flokkað sem „Semi-Professional Recorder“

Það sem hér þurfti að gera var að yfirfara Input rásirnar/mix og NAB eq magnarana.     Allt mekaniskt í fullkomnu lagi.  Bremsur og hraðastýringar.

Maggi 

Fisher EQ-875

Fisher EQ-875

Þetta er úr línu frá Fisher sem nefndist Studio Standard.   Þetta er s.k. Grafískur tónjafnari.  e.  Graphic Equalizer.

Mjög flottur útlitslega og ágætur í virkni.   Rauðir punktar í tíðnistillum þegar hann er virkur.   Tíðnisvörunardisplay. 

Ég er stundum tvístígandi við að nota svona græjur.  Finnst það lita hljóminn mikið og setja inn mismunandi fasvik eftir tíðnum.

Ef stillt er hins vegar nálægt miðlínu (0 dB) getur þetta verið til bóta.

Það sem hér þurfti að laga voru þéttaskipti í spennugjafanum og hreinsun á skipturum.   Örlítið þurfti að hreinsa í efri tíðnisleðana.

Maggi   

Heathkit AA-100

Heathkit AA-100

Þessi kom frá Heathkit 1962-3 og var í kit formi.   Heilmikil vinna fór í að setja hann saman en útkoman var flott þegar menn vönduðu sig.    Dálítið í anda tímans sem þá var.  Allur fronturinn upplýstur eins og í amerískri drossíu!  Bassi og Diskant aðskildir á sitthvorri rásinni,  hægt að blanda rásum, venda og keyra einungis sitthvora.   Levelstilli á öllum inngöngum.   Stereo – Mono separation stilli.

Vinylklæddur á hliðum.    Ofnar í stofum voru óþarfir meðan hann var í gangi.

Í þennan magnara er hægt að fá endurgerðar prentplöturnar og sérhönnuðu tónstillirásirnar endursmíðaðar.    Eru eftirsóttir á EBay.

Í honum eru þessir lampar:   13 stk

  • 2x EF86
  • 4x 12AX7
  • 2x 7199
  • 4x 7591
  • 1x GZ34

Ég átti einu sinni svona en henti honum í algerum óvitaskap.   (fyrir mörgum árum)  

M.