Philips Project A12000

Philips Project A12000

Eiginlega næstum flottur magnari frá Philips.   Þeir voru eitthvað að feta sig á þessari braut á þessum tíma.

Dálítið ruglingslegur að innan og Philips ættarmótið augljóst.

Þessi var með bilaða straumstýringu og óhrein stilli.

Tókst býsna vel til.

Maggi

 

 

Denon AVR-2308

Heimabíómagnari.  margar rásir.   Hér þurfti ég að skipta um nánast öll protection relay-in í magnaranum.  Talsvert rifrildi.

Bakhliðin er þéttpökkuð af tengjum!

Nauðsynlegt var að „Factory resetta“ hann eftir viðgerðina

tókst vel.

Maggi

Íhlutir í Denon 2308

Varnarrelay:   F4AK024T

M.

Pioneer SA-7300

Ágætur magnari frá Pioneer.   Rúmt um íhluti og virkar vel.   Power mögnun í þessum magnara er í „Hybrid“ rásum fyrir hvora rás.    Þar eru útgangar og driver-rásir ásamt íhlutum plantað á hitaleiðandi grunnplötu sem síðan er skrúfuð á kæliplötuna.

Þessi þurfti þéttaskipti í spennustýringu og hreinsun á skipturum og stillum auk lóðninga á hybrid-rásunum.

Maggi

Power Amp Rásirnar heita:

  • SP-40W