Spennugjafakit fyrir magnara

Við eigum von á nokkrum svona kittum fljótlega.   Prentplatan og allir íhlutir fylgja með að undanskildum stóru þéttunum. 

Þetta er nauðsynlegt fyrir magnara sem nota dual-spennugjafa með mótstæðum spennum.    +/- 40-70V. 

Nánast allir almennilegir magnarar eru þannig.

Nýrri D-klassa magnarar nota hins vegar einfalda rekstrarspennu en talsverðan straum.

Verður hér í vefverslun

 

GX tengi bætast á Lagerinn

Nú nýlega vorum við að bæta á Lagerinn hjá okkur svo kölluðum GX tengjum.    Þetta eru vönduð tengi sem oft eru notuð við millitengingar við tæki eins og fyrir spennufæðingu og sést oft sem hljóðnematengi.  sem dæmi í CB talstöðvum.

Þessi tengi er hægt að fá í nokkrum stærðum og í mismunandi fjölda pinna. 

Númerin gefa til kynna þvermál snitteringarinnar

  • GX12 týpan er með 12mm snitt
  • GX16 er með 16mm
  • GX20 er með 20mm

Eru hér í Vefversluninni