Hvað er RIAA staðall?

Pioneer PL-570

Hvað er RIAA staðall?

Svar:

RIAA er upptöku / spilunar-staðall fyrir Vinylplötur.   Stendur fyrir Recording Industry Association of America

Þetta er nauðsynlegt forstig fyrir Pickup í plötuspilurum.    Bæði afar lágt level og halli á tíðnikúrfu gera þetta nauðsynlegt.

Til að minnka bjögun og til að koma fyrir lengri upptökum á plötuna, var gripið til þess að skrá lægri tíðninar og þar með bassann, á lægri styrk í yfirborð plötunnar.

Þá hreyfist nálin minna og minni hætta að skrifa yfir í næstu rauf (groove).  Þar með var hægt að hafa raufarnar þéttari

Þessu er snúið til baka í RIAA magnaranum.  (Phono input á eldri mögnurum)

Maggi

Skalaperur og þróun

ég er farinn að nota LED lýsingar í þessum tilfellum.   Þá barf að velja mjúka birtu, ekki bláhvíta.

Í t.d. Marantz mögnurum, sem heilmikið er til af og fólk vill gjarnan eiga og nota, eru original perur sem eru eins og USA öryggi í laginu.   Þær eru 8V og 150 eða 200mA.

Með smá breytingum og nokkrum auka-íhlutum er hægt að nota LED hér í stað gömlu glóperanna.

Virkar flott og mjög „uniform“ birta.     Svo geri ég ráð fyrir mun betri endingu.

Búast má við þróun hér og að í fleiri mögnurum verði hægt að koma fyrir LED lýsingu í stað hinnar original glóperu-lýsingar.

Nú (2022)  er ég kominn með LED skalaperur sem ganga beint í magnarana og því þarf ekki að gera neinar breytingar!     

Eru hér á vef-versluninni.

Maggi

Um lampa

AfriðilslampiLampar eru af mjög mörgum gerðum og útfærslum. Lampar voru þróaðir eðlilega til að mæta mismunandi eiginleikum. T.d eru Audio lampar talsvert frábrugðnir lömpum sem hannaðir eru fyrir RF. Almennt er ekki hægt að nota slíka í Audio. (Tetróður)

Stór hluti lampaflórunnar er mis-úreltur og hefur ekki verið framleiddur í áratugi enda engin þörf þar á. Það sem til er af slíku er í gömlum lagerum. Samt eru sumir lampar sem enn eru notaðir hannaðir fyrir 1940! Það eru helst lampar fyrir RF.

Annað er uppi á teningnum um Audio lampa. þeir eru enn í framleiðslu og mikilli notkun.

Síðan er eitt, Mismunandi framleiðendur náðu mismiklum gæðum í sinni framleiðslu auk þess að gæðaeftirlit var afar mismunandi.

Nú orðið eru lampar frá ákveðnum eldri framleiðendum mjög eftirsóttir (og dýrir).

Má hér nefna framleiðendur eins og:

Telefunken, Mullard, G.E.C., Philips, RCA, Sylvania.

Lampar frá þessum framleiðendum þykja betri en margir sem framleiddir eru í dag. Þegar framleiðslu var hætt, voru dæmi um að heilu verksmiðjurnar væru fluttar til austur-evrópu.

Nú á dögum er samt hægt að fá nýja og virkilega fína audio lampa. Það er ekki á undanhaldi.

Meira hér síðar

Maggi