í kvikmyndinni Málmhaus í leikstjórn Ragnars Bragasonar
er talsvert notað af græjum, heyrnartól og segulbönd.
Hver haldið þið að hafi verið fenginn að yfirfara það svo að virkaði?
Maggi

Verslun og vefverslun, Íhlutir og smávörur. Viðgerðir á hljómtækjum, Yfirfærslur mynd- og hljóðefnis á stafrænt form, Smíðar og hönnun hljómtækja.
Allskonar greinar til fróðleiks, ekki sérbundið
Blátt plasmagas getur myndast innan á glerinu eða við götin á plötunni. Þetta stafar af hárri plötuspennunni, leyfum af loft-molekúlum sem orðið hafa eftir við framleiðsluna og fljúgandi elektrónum. Meira ber á þessu undir meira álagi, of hárri plötuspennu eða illa/van-stilltum Bias.
Þetta er eðlilegt. Rauður litur og hitablettir á plötunni eru það hins vegar ekki.
Sjá má flökt á blámanum eftir álagi lampans.
Maggi

Svar:
Getter flash er silfraða húðin sem sést innan á glerinu.
Getter er annaðhvort hringur eða bolli sem festur er við innvolsið í lampanum, – efst eða neðst þannig að frussið frá þeim lendi ekki á innvolsinu.
Til þess að trygga algert lofttóm innan í lampanum er komið fyrir sérstökum málmum í litlum bollum eða hringjum,

Síðasta verkið í framleiðslunni er að „fíra getterinn“
Lampanum er þá, að lokum, stungið í sterkt segulvið sem kveikir málminn og eyðir síðustu lofteindunum sem ekki náðust með lofttæmi-pumpunni.
Ef lampinn brotnar eða lekur, verður þessi húð hvít eins og skot.
Maggi