Lampar á lagernum hér

Á lagernum eru til nú nærri 600 gerðir og týpur af lömpum,  ég set þetta hér í einu lagi meðan ég græja síðuna.

Á þessum lista eru bæði nýir og notaðir lampar.   

Vörulistinn á PDF   er listi yfir allar vörur hjá mér.  Þar er hægt að sjá þá lampa sem til eru á lagernum,  verðin eru án VSK

ef þú sérð eitthvað sem þig vantar, máttu hafa samband á verksted@tubes.is

Athugið þó að listinn er ekki alveg tæmandi og hugsanlegar magnvillur. 

Maggi

Stafræn sveiflusjá

Scope DSO-138 í Vefversluninni

Ég er búinn að setja saman eina af þessum.

Prentið er af alveg ágætum gæðum og vel er merkt fyrir öllum íhlutum.  Allt passar vel og fellur saman.   Kemur með tilsniðnu acryl húsi . 

Það verður þó að segjast að þetta er ekki endilega kit sem hentar algerum byrjendum.

Það útheimtir talsverða nákvæmni að setja þetta saman.  Hluti íhlutanna (componenta) eru SMD.  (Surface Mounted Device)

Margir íhlutanna er mjög smáir.

Ekki gerlegt, fyrir mig a.m.k. , nema undir stækkunarlampa og með hitastýrðum lóðbolta.

Maður þarf að vera í rusl-fríu umhverfi og í andlegu meðaljafnvægi.

Sveiflusjáin virkar ágætilega til að lesa audioform og fleira.    Þetta er nú ekki „full-blast“ scope en maður kemst býsna langt.

Maggi

RIAA formagnari í hönnun/framleiðslu

 

Þetta er nauðsynlegt forstig fyrir Pickup í plötuspilurum.    Bæði afar lágt level og halli á tíðnikúrfu gera þetta nauðsynlegt.

Þessi gerð tengi-Innganga fer fækkandi á nútíma mögnurum   (Phono Input)

Verkstæði Magga hefur hannað og smíðað sérstandandi RIAA inngangsmagnara með lömpum.

Ekki þarf að fjölyrða um tóngæði og skýrleik (detail) hljómsins.

Þetta er einnig eining sem hluti af Formagnara sem hannaður hefur verið hér og prototype smíðaður.

Þetta er eitt af því sem við sjáum í hyllingum að geta framleitt og leyft öðrum að njóta.

 

Maggi