Um lampa

AfriðilslampiLampar eru af mjög mörgum gerðum og útfærslum. Lampar voru þróaðir eðlilega til að mæta mismunandi eiginleikum. T.d eru Audio lampar talsvert frábrugðnir lömpum sem hannaðir eru fyrir RF. Almennt er ekki hægt að nota slíka í Audio. (Tetróður)

Stór hluti lampaflórunnar er mis-úreltur og hefur ekki verið framleiddur í áratugi enda engin þörf þar á. Það sem til er af slíku er í gömlum lagerum. Samt eru sumir lampar sem enn eru notaðir hannaðir fyrir 1940! Það eru helst lampar fyrir RF.

Annað er uppi á teningnum um Audio lampa. þeir eru enn í framleiðslu og mikilli notkun.

Síðan er eitt, Mismunandi framleiðendur náðu mismiklum gæðum í sinni framleiðslu auk þess að gæðaeftirlit var afar mismunandi.

Nú orðið eru lampar frá ákveðnum eldri framleiðendum mjög eftirsóttir (og dýrir).

Má hér nefna framleiðendur eins og:

Telefunken, Mullard, G.E.C., Philips, RCA, Sylvania.

Lampar frá þessum framleiðendum þykja betri en margir sem framleiddir eru í dag. Þegar framleiðslu var hætt, voru dæmi um að heilu verksmiðjurnar væru fluttar til austur-evrópu.

Nú á dögum er samt hægt að fá nýja og virkilega fína audio lampa. Það er ekki á undanhaldi.

Meira hér síðar

Maggi

Fyrirtækið, stofnun og saga

Verkstæði Magga Hermannss var stofnað formlega þann 1. desember 2011

Það er í eigin húsnæði að Úthaga 13 á Selfossi.

MH er rafeindavirkjameistari frá 1996 en hefur starfað við rafeindabúnað frá upphafi starfsferils og reyndar fyrr, sem ungur fiktiputti í rafmagnsdóti.

Nam rafeindavirkjun hjá Póst og Símaskólanum og hlaut starfsþjálfun hjá Pósti og Síma, fjölsímadeild, sem þá var, síðan á Loranstöðinni á Gufuskálum.

Starfaði síðar við Ratsjár-varnarkerfið í Keflavík / Radarstöðvunum og þar eftir hjá Árvirkjanum á Selfossi í viðgerðum ofl.

Var síðar kerfisstjóri hjá Sveitarfélaginu Árborg.

Starfsmenn og aðstoðarfólk eru fjölskyldumeðlimirnir.

Áherslupunktar í rekstrinum.

  • Yfirfærslur af myndböndum, segulböndum og vinylplötum yfir á stafrænt form. 
  • Því er ýmist skilað á flökkurum eða minnislyklum.   Nú bjóðum við einnig upp  á  skil yfir net (ekki stærstu söfnin, þó)   sjá hér
  • Viðgerðir – helst á vandaðri hljómtækjum. 
  • Stefnt er á fjölbreytta vefverslun (þ.e. í þessum bransa)
  • Hátalarasmíðar og hönnun auk viðgerða.
  • Magnarar og smíðar (lampar)

Nú á haustmánuðum 2022 eru talsverðar breytingar í farvatninu.

Verkstæðið verður opið á dagvinnutíma.   Ég mun sinna því en aðrir starfsmenn eru allir í fullri vinnu annars staðar eða skóla.

Þetta verður semsagt minn aðal vettvangur til vinnu.    Mín ósk er sú að þjónustan sem boðið er upp á hér sé eitthvað sem hefur vantað.   Viðgerðir og betri nýting þess sem við eigum, talar vel inn í samtímann.

Á lagernum hjá mér er mikið úrval íhluta til viðgerða og fer ört stækkandi.

Maggi Hermannss