DIN Hátalaratengi bætast við

 

Við vorum að fá svona tengi á lagerinn.

Þetta eru sk. DIN Spkr tengi.  Voru og eru notuð sem hátalaratengi á sumum mögnurum.  Til dæmis voru B&O magnarar með svona tengi um árabil.

Þessi eru þægileg að því leyti að ekki þarf að lóða neitt, bara skrúfað.

Að auki er kápan skrúfuð á, og situr mjög vel.

Þetta er hér á lagernum.

 

 

Spennugjafakit fyrir magnara

Við eigum von á nokkrum svona kittum fljótlega.   Prentplatan og allir íhlutir fylgja með að undanskildum stóru þéttunum. 

Þetta er nauðsynlegt fyrir magnara sem nota dual-spennugjafa með mótstæðum spennum.    +/- 40-70V. 

Nánast allir almennilegir magnarar eru þannig.

Nýrri D-klassa magnarar nota hins vegar einfalda rekstrarspennu en talsverðan straum.

Verður hér í vefverslun