Sherwood S-3000II

Sherwood S-3000II

FM lampa-tuner frá Sherwood.  Er með fullan FM-skala  88.0 – 108 MHz vegna þess að hann var smíðaður fyrir bandaríkjamarkað á sínum tíma eða um 1959.

í honum eru 11 lampar.

Öllu haganlega fyrirkomið og flott.   Ég á einn svona sem er í fullkomnu lagi.    Sá var í notkun – stöðugri notkun öll árin á Loranstöðinni á Gufuskálum, sem ég var þar og í raun löngu áður.    Dag og nótt gekk hann og sá hátalarakerfinu fyrir prógrammi.

Þetta kalla ég endingu.

Maggi

Marantz PM-55

Þessi er öflugur og fínn magnari frá Marantz.   Þarna eru menn ekki alvarlega byrjaðir að stytta sér leiðir í framleiðslunni. 

Hér sér maður þó að forstigin í kraftmagnaranum tekin saman í custom Ic-rásir.   Útgangstransistorarnir eru sér.

Hér voru lóðningavandamál við þessar forstigsrásir sem og skiptarar og stilli sem þurfti að hreinsa.    Þéttur í soundi!.

Gekk vel,

Maggi

Pioneer SA-7500

Pioneer SA-7500

Fínn og flottur fulltrúi magnara frá Pioneer.   Milli-öflugur en vel smíðaður og vandaður.   Þetta eintak á myndinni var hjá mér í yfirhalningu og skipti ég út urmul íhluta.   Bæði þéttum og transistorum.    Tantalium electrolyt þéttum sem oft eru á inngöngum eininga, skipt út fyrir „Vima“ þétta sem ekki eru pólaðir.

Transistorum sem hafa hátt „eigin“ suð skipt út.  

Þessi vegferð skilaði virkilega góðum árangri og ég tók það orð af eigandanum að ef hann hygði á að selja hann að hafa samband fyrst við mig!

Útgangarnir hér eru

  • 2SD388 x2
  • 2SB541 x2

Maggi