Opnunartímar verkstæðis

Verkstæðið er í bílskúrnum í Úthaga 13, Selfossi  

Nú er staðan hjá mér persónulega, orðin slík að ég verð að loka á verkstæðinu, tímabundið.

Það er vegna heilsubrests sem ég neyðist til að gera það.   Ég get því ekki tekið við viðgerða-verkefnum eins og staðan er.

Vefverslunin verður þó opin og ég get tekið yfirfærsluverkefni sem ekki liggur mjög á.  

Ég mun að sjálfsögðu klára þau verkefni sem þegar eru inni og læt vita þegar þau klárast.  

Ég vona að viðskiptamenn okkar sýni þessu skilning, meðan þetta varir. 

Sé þó fram á bætta heilsu með hækkandi sól og vonast innilega til að geta haldið áfram þegar vorar. 

Fyrir upplýsingar, þá er best að hringja í síma 699-7684,  athugið þó að ég er einn af þessum sem ekki er með samgróninga við símann minn.     

Síminn er geymdur á vinnuborðinu.   

eða á e-mail:  verksted@tubes.is

Maggi

 

SMPS spennugjafar 12/24V

Vorum að taka inn til prufu,  spennugjafa fyrir 12 eða 24V.   

Opnir og til að setja í kassa / project,   

Margt sem verið er að bauka í rafeindatækni gengur á 12V Dc eða 24V,

Yfirálagsvörn og fl.

Hagstætt verð er á þessum spennugjöfum

Eru hér í Vef-verslun:

SMPS spennugjafar

Pioneer PL-112D

Pioneer PL-112D

Snotur,  reimdrifinn plötuspilari frá Pioneer.   Einn nokkurra í framleiðslulínu sem segja má að hefðist með PL-12D

Fallegur S-armur

Einn af þessum sem endast og endast.

Var smíðaður 1978-80.

 

Reimin í hann er  : FBM23.6