Lampar á lagernum hér

Á lagernum eru til nú nærri 600 gerðir og týpur af lömpum,  ég set þetta hér í einu lagi meðan ég græja síðuna.

Á þessum lista eru bæði nýir og notaðir lampar.   

Vörulistinn á PDF   er listi yfir allar vörur hjá mér.  Þar er hægt að sjá þá lampa sem til eru á lagernum,  verðin eru án VSK

ef þú sérð eitthvað sem þig vantar, máttu hafa samband á verksted@tubes.is

Athugið þó að listinn er ekki alveg tæmandi og hugsanlegar magnvillur. 

Maggi

„RadiWoW“ útvarpstæki

Útvarpstæki með afar sérstakt nafn.   Við erum að taka eitt svona til prófunar.    Það getur orðið á nokkuð hagstæðu verði.   Samkvæmt upplýsingum um tækið virðist það næmt og með flotta SW móttöku auk fleiri tíðnibanda.

Það er með sérstakt hleðslubatterí sem fylgir.  (BL-5C lithium battery) Hlaðið á USB, þannig að ekki þarf að versla rafhlöður.

Meira um tækið hér þegar prófanir hafa farið fram.

Fyrstu athuganir: 

  • FM móttakan er með ágætum og hljómur betri en ég bjóst við. 
  • Hins vegar finnst mér vanta talsvert á næmið á AM.  t.d.  næ ég ekki RUV frá Gufuskálum ( LW 189 kHz )   nema með herkjum.  Sama á miðbylgju.  Þar nær maður ekki neinum stöðvum nema í miklu suði.  Eftir er að prófa tækið við loftnet,  en það er nú almennt ekki til staðar.

Lítið og handhægt tæki með nokkrum auka-fídusum.

RadiWoW specs

Maggi

 

Lampamagnarasett TubeCube7

    Mig langar verulega að geta boðið upp á þetta lampamagnarasett.

Hér er einfaldleikinn í fyrirúmi.   SE  (single ended)  útgangar og engin tónstilli.

Það verður í prófun hér á verkstæðinu og í sölu ef vel gengur.

Þetta er skilgreint sem „bookshelf audio set“   ég held nú að meiri innistæða  sé heldur en það.

Endilega fylgist með.

Maggi