Pioneer SA-8500 II

Þetta er einn að þeim allra flottustu mögnurunum frá Pioneer.   Gæti vel hugsað mér að eignast einn svona með tíð og tíma.

Sundurtekinn

Þurfti að skipta um eitthvað af þéttum hér og hreinsa í stillin og rofana.    Sjáið hvernig Bassa og Diskant stillin eru með hvort um sig þrjár mismunandi cross-over tíðnir sem stillingin virkar á.   Minnir á það sem Quad gerði á sínum 202 formagnara.

Eins loading á Phono cartridge

Þessi viðgerð gekk vel.

Maggi

Pioneer CT-3131 Cassette Tape deck

Þetta er tæki sem var smíðað 1973,  árið sem Vestmannaeyjagosið var og ég var 13 ára gutti og flúði undan því.

Þetta er með fyrri cassettutækjunum frá Pioneer.   Ég er búinn að eiga þetta eintak í  nærri 38 ár og alltaf haft það í notkun.

Eina sem ég hef þurft að gera er að skipta um reimar og hreinsa í REC/Play skiptarann.

Var að skipta núna en það var eiginlega ekki þörf á því.    Merkilegt hvað þetta virkar vel,   ekkert Dolby en stilling fyrir Chrome tape.

Reimasettið :

Maggi