Pioneer SA-7500

Pioneer SA-7500

Fínn og flottur fulltrúi magnara frá Pioneer.   Milli-öflugur en vel smíðaður og vandaður.   Þetta eintak á myndinni var hjá mér í yfirhalningu og skipti ég út urmul íhluta.   Bæði þéttum og transistorum.    Tantalium electrolyt þéttum sem oft eru á inngöngum eininga, skipt út fyrir „Vima“ þétta sem ekki eru pólaðir.

Transistorum sem hafa hátt „eigin“ suð skipt út.  

Þessi vegferð skilaði virkilega góðum árangri og ég tók það orð af eigandanum að ef hann hygði á að selja hann að hafa samband fyrst við mig!

Útgangarnir hér eru

  • 2SD388 x2
  • 2SB541 x2

Maggi

Pioneer A-605R

Pioneer-A-605R

Stereo magnari frá Pioneer.   

Þeir sem taka kassahlífina af þessum og hafa í gangi á sama tíma verða að passa sig að á snerta ekki kæliplöturnar fyrir útgangana, því það getur verið yfir 90V DC spennumunur á þeim.   Ekki gott að leggja hendur yfir hann!    Dálítið sérstök útfærsla, finnst mér,  kannski einhver reiknaður sparnaður.

Það sem var að þessum var notkunarleysi og óhreinindi í stillum og skipturum.  Þurfti að stilla hvílustrauma og DC balans á útgöngum.

Það eru MosFet útgangar í þessum

  • IRF540 x2
  • IRF9540 x2

Maggi

 

 

Pioneer SA-8100

Pioneer SA-8100

Stereo magnari frá Pioneer.

Alveg glæsileg smíð og virkilega eigulegur.     Talsvert lagt upp úr viðamiklum skermingum yfir tónstillihlutann.

Þessi þurfti bara smá handayfirlagningu.

Hann hefur þessa útganga

  • 2SD370 x2
  • 2SB530 x2

Maggi