Hér eru Bæklingar fyrir Tecsun útvarpstæki
Hugleiðingar varðandi innleiðingu persónuverndarlaga
Verkstæði Magga Hermannss
Persónugreinanleg gögn sem safnast hér upp, eru eingöngu vegna þeirra viðskipta sem hér fara fram. Engar greiningar eða sérsniðnar vinnslur eru gerðar á þeim.
Engin gögn eru látin af hendi, héðan til þriðja aðila.
Kennitölur eru notaðar í bókhaldskerfinu til að halda utan um viðskipti og reikninga viðskiptavina og sama á við þegar greiðslur fara í gegn um bankakerfið.
Engir póstlistar eru virkir hjá okkur eða fjölpóstsendingar.
Notendur/kaupendur á vefverslun Magga Hermannss geta skoðað sín viðskipti þegar þeir eru skráðir inn á vefinn. Það birtist engum nema þeim sjálfum. Þar geta notendur eytt verslunarfærslum að vild.
Þeir notendur sem það vilja, geta óskað eftir að öllum gögnum þeirra á vefsvæðinu verði eytt. Það verður þá orðið við því
Maggi
Nafngiftir á lömpum – Evrópa
Sumir velta fyrir sér hvað standi eiginlega á bak við númerin sem eru á lömpunum. Það eru ákveðin kerfi á bak við það.
í þessari grein fjalla ég um nafngiftir lampa eins og tíðkuðust í Evrópu. Þessar hefðir eru enn virtar og notaðar við framleiðsluna í dag.
Fyrsti stafur er glóðarspenna eða straumur, annar og þriðji lýsa hvers konar element eru í lampanum og númerið lýsir sökkulgerð og eiginleikum. Þetta er sótt m.a. á Wikipedia
t.d. ECC82 hér er með 6.3V glóð, tvær smásignal tríóður og er með 9BA sökkul
ECL81 væri 6.3V glóð, smásignal tríóða og pentóða í sama húsi og með 9BA sökkli. (9-pinna)
EL34 er þá lampi með 6.3V glóð og einni pentóðu og verandi með octal sökkul.
GZ32 væri þá afriðilslampi (tvær díóður) með 5V glóð og octal sökkli
