Hybrid magnari settur saman

Ég er búinn að setja saman einn af þessum.  Lampa-headphone Amp og Hybrid útgangur. 

linkur á Kit á Lager

Hann fór saman i einni bunu og var settur í gang og virkar alveg eins og engill.  

Hann er með tvær 6J1 pentóður sem inngangsstig sem keyra tvær LM1875 Magnararásir fyrir hátalara.   Þær eru nánast í „Starve“ Mode vegna þess hversu plötuspennan er lág.    Ef maður tengir headphone í tengið er þetta eingöngu lampamögnun.  Þá eru Ic rásirnar ekki notaðar.

Ég var alveg hissa hvað hann hljómaði vel.     Þetta var bara gaman

Hann þarf 18V-0-18V AC keyrslu-spennu.   (spennir)

Maggi 

 

Spennugjafi fyrir lampa-formagnara

Þessa gerð spennugjafa hef ég tekið til prófunar og í sölu ef hann kemur vel út. 

Hentugur fyrir lampa formagnara. 

Hann er ekki hannaður fyrir mikið afl eins og stærri magnara þurfa

Er full skermaður og nettur.    

  • 265V B+    með seinkun
  • 6.3V fyrir glóðina

Hægt verður að sjá hann hér:

Spennugjafi, lampaformagnara,  PS-Tube-03

Maggi

8V-AC LED perur

Þessar notast beint í stað 8V 60-80mA glóðarpera – skalapera  sem td.  eru aftan við stóru skalana á útvarpsmögnurum eins og Marantz ofl.     Þær perur eru að verða ófáanlegar.

Eru komnar á Lager

Warm White 29mm USA-Fuse LED lamp 8V AC

Fram að þessu hefur þurft að gera smávægilegar breytingar vegna þess að fyrri perur sem ég hef notað eru fyrir DC.    Með þessum þarf ekki að breyta neinu og þær ganga beint í.

Eru til í verslun.

Maggi