Pioneer RT-1020L

Pioneer RT-1020L

Mjög frambærilegt og fallegt tæki frá Pioneer.  framleitt á árunum 1974 – 78

Þetta er á viðgerðarborðinu núna.

Þriggja mótóra og tveggja rása en getur spilað 4-rása band tekið upp í slíkum græjum.   Getur ekki tekið upp 4 rásir.

Hér erum við að eiga við bremsurnar og slit í mótorlegum.   Einnig þarf ég að skoða reimarnar.    Svo er eftir að fara í gegn um magnararásirnar, Bias ofl.

M  

Kenwood KX-500

Snoturt kassettutæki frá Kenwood

Logic snertihnappar.

Smíðað 1980-82 í Japan

Er með stillanlegan Bias sem ekki var algengt á þessum árum en maður þarf að prófa sig áfram til að stilla hann rétt eftir tegundum.     Í raun þarf aðskilda REC og Play hausa til að stillanlegur bias komi að gagni.  Þá heyrirðu breytingarnar strax og stillið er hreyft.

Ágætur mekaniskmi

NAD 3020

NAD 3020

Gamalreyndur gullmoli sem tekur enn mörgum fram í hljómgæðum.   

Afskaplega ljúfur í keyrslu

 

Þótti smart að hafa tengin lárétt á hillu aftan á frekar en beint á bakhliðinni.

Veiki punkturinn hér eru hátalaratengin.   Stundum hafa menn sett ný „Banana-tengi“ hér.     Mér finnst „Original“ eiga betur við hér.

 

 

Varahlutir í NAD 3020

Útgangarnir:

Hátalaratengið :

M.