
Virkilega fallegur, einfaldur og beindrifinn plötuspilari frá Luxman.
Smíðaður 1985-88.
1.6 kg platti
Eina sem ég hef séð bila í þessum eru microrofar undir arminum
þeir fást hér.
Micro-rofi 3Pin, 15-15A250V RB
M

Verslun og vefverslun, Íhlutir og smávörur. Viðgerðir á hljómtækjum, Yfirfærslur mynd- og hljóðefnis á stafrænt form, Smíðar og hönnun hljómtækja.

Virkilega fallegur, einfaldur og beindrifinn plötuspilari frá Luxman.
Smíðaður 1985-88.
1.6 kg platti
Eina sem ég hef séð bila í þessum eru microrofar undir arminum
þeir fást hér.
Micro-rofi 3Pin, 15-15A250V RB
M

Mjög snoturt kassettutæki frá Pioneer. Smíðað á árunum 1974-78
Sérstakt hvernig kassettan er látin hálf-liggja. Mér finnst það flott. Góður mekanismi í þessu tæki eins og vaninn er frá þessum árum. Eina sem bilar hér er REC/Play skiptarinn og svo reimarnar.
Reimarnar:
Eða reimasett frá Thakker
M.

Efnismikill og vandaður plötuspilari frá Kenwood. Boddýið er nánast eins og marmari, er úr steyptu hörðu steinefni og þungur eftir því. Það sem er sérkennilegast við hann er mekanisminn sem lyftir arminum og tekur hann til baka eftir spilun. Segja má að hann sé trekktur upp með stóra handfanginu og það virkjað til að hreyfa arminn. Heilmikið glussasystem svo það gerist rólega. Ekki gert með hreyfingu plattans eins og lang flestir spilarar sem eru „Auto return“.
Harða efnið í boddýinu og þykka spónaplatan undir eru saman hönnuð sem titringsdeyfir.
Ég þurfti að rífa hann í spað, þar með talinn armurinn og legurnar þar undir. ( legukúlur 1mm í þvermál ) Hreinsaði spindilleguna.
Virkar nú eins og engill.
M.