
Í dag var sérlega fallegur suðurhimininn með sólarglitru, gangandi skuggum og sólstöfum í allar áttir.
Það er eins og að himnafaðirinn sé að lofa okkur bjartara ári.
Við vonum það allavega.
Anna Linda tók myndina í dag frá Votmúlaveginum
Maggi

Verslun og vefverslun, Íhlutir og smávörur. Viðgerðir á hljómtækjum, Yfirfærslur mynd- og hljóðefnis á stafrænt form, Smíðar og hönnun hljómtækja.

Nú hefur verkstæðið eignast og fengið til afnota,
Sony DCR-TRV310 NTSC
cameru sem er fyrir 8MM videospólur og með NTSC kerfinu. Hún spilar því 8mm Spólur sem eru teknar upp í NTSC kerfinu. (Ameríska kerfinu) Þær spilast ekki í tækjum framleiddum fyrir Evrópumarkað.
Þetta hefur okkur vantað tilfinnanlega, því af og til koma spólur inn í afritun sem eru á NTSC formati. Þær höfum við ekki getað afritað.
Maggi
Nú hef ég tekið til prófunar og sölu, ef hann stenst viðmið, ATS-20 stuttbylgjumóttakara.
Mjög nettur og skemmtilegur. Tekur öll stuttbylguböndin sem margir þekkja. Sideband vinnsla og BFO, LSB og USB og venjulegt AM
Nær 189 kHz, RUV á Gufuskálum – fyrir öryggið.
Mjög næmur á FM.
Innbyggð Li-Ion rafhlaða sem hlaðin er frá USB
Fyrstu prófanir lofa mjög góðu. Maggi
Helstu kennistærðir:
SI4732 All Band Radio Receiver FM AM (MW SW) SSB (LSB USB) með hátalara, loftneti og USB Snúru
Lýsing:
3.6V lithium rafhlaða
USB hleðsla
Innbyggður 8 ohm speaker 1W
FM Stereo Móttaka (3.5mm jack)
BNC Loftnets-tengi
Stillanlegt AGC (Gain-control)
Notar si4735 Ic rás sem sér um allt.
FM, AM-LW (MW og SW) + SSB (LSB and USB);
0.5, 1, 1.2, 2.2, 3, 4 og 6kHz audio bandbreiddar síur. (notast mest á SSB)
22 skilgreind tíðnibönd (commercial radio and amateur bands)
BFO (Beat Freq Osc. notast á SSB)
Stillanleg tíðni-þrep (1, 5 and 10kHz)