
Þetta tæki var á borðinu hjá mér fyrir margt löngu.
Enfalt tæki og heilmikil mekanikk. Spilar og tekur upp í báðar áttir með sitthvoru hausasettinu. Lítið sem bilar hér nema hraðastýring á Async mótornum og reimar.
Gekk vel.
Maggi

Verslun og vefverslun, Íhlutir og smávörur. Viðgerðir á hljómtækjum, Yfirfærslur mynd- og hljóðefnis á stafrænt form, Smíðar og hönnun hljómtækja.

Þetta tæki var á borðinu hjá mér fyrir margt löngu.
Enfalt tæki og heilmikil mekanikk. Spilar og tekur upp í báðar áttir með sitthvoru hausasettinu. Lítið sem bilar hér nema hraðastýring á Async mótornum og reimar.
Gekk vel.
Maggi
Ég er búinn að setja saman einn af þessum. Lampa-headphone Amp og Hybrid útgangur.
Hann fór saman i einni bunu og var settur í gang og virkar alveg eins og engill.
Hann er með tvær 6J1 pentóður sem inngangsstig sem keyra tvær LM1875 Magnararásir fyrir hátalara. Þær eru nánast í „Starve“ Mode vegna þess hversu plötuspennan er lág. Ef maður tengir headphone í tengið er þetta eingöngu lampamögnun. Þá eru Ic rásirnar ekki notaðar.
Ég var alveg hissa hvað hann hljómaði vel. Þetta var bara gaman
Hann þarf 18V-0-18V AC keyrslu-spennu. (spennir)
Maggi
Þessa gerð spennugjafa hef ég tekið til prófunar og í sölu ef hann kemur vel út.
Hentugur fyrir lampa formagnara.
Hann er ekki hannaður fyrir mikið afl eins og stærri magnara þurfa
Er full skermaður og nettur.
Hægt verður að sjá hann hér:
Spennugjafi, lampaformagnara, PS-Tube-03
Maggi