Við erum að fá svona til gamnis og prófunar.
Þetta er USB hleðslu-tester til að geta fylgst með hvernig hleðsla gengur um USB.
Stundum er maður ekki alveg viss – þegar tækin sýna ekki framganginn á hleðslunni.
Búið að prófa og þetta virkar fínt.

Verslun og vefverslun, Íhlutir og smávörur. Viðgerðir á hljómtækjum, Yfirfærslur mynd- og hljóðefnis á stafrænt form, Smíðar og hönnun hljómtækja.
Við erum að fá svona til gamnis og prófunar.
Þetta er USB hleðslu-tester til að geta fylgst með hvernig hleðsla gengur um USB.
Stundum er maður ekki alveg viss – þegar tækin sýna ekki framganginn á hleðslunni.
Búið að prófa og þetta virkar fínt.
Tæki, eins og þetta, var að komast í lag hjá mér í dag. Play/Rec skiptarasystemið alveg gróið fast – lagfært. Mótorinn var nánast fastur.
Geymslutengd vandamál. Einnig þurfti að laga halla á pressuhjólinu sem varð til þess að tape rann alltaf út úr skorðum og krumpaðist.
Ágætt tæki með 3 hausum þannig að hægt var og er að hlusta á upptökurnar af tape um leið og þær voru gerðar.
Maggi
Upptökur á 8MM videospólum voru stundum teknar upp í sk. Long Play Mode (LP) en ekki í ráðlögðu SP Mode (Standard Play)
Með LP var hægt að nálgast 90 mín upptökutíma á 60 mín spólu.
Fólk áleit að það væri að spara og spólurnar voru reyndar ekki beint ódýrar á þeim tíma.
Þessar upptökur eru mjög erfiðar í afspilun og hugsanlega bara af vélinni sem tekið var upphaflega tekið á.
Ég reyni allar vélar sem ég hef til umráða og reyni að stilla af bandstýringar til að stilla þetta saman og ná upptökunum
Hjá okkur er ekkert aukalegt gjald tekið af þessum spólum.
Maggi