Pioneer RT-909

Pioneer RT-909

Flaggskip Pioneer í Reel/Reel segulböndum á sínum tíma.   

Afar glæsilegt og eftirsótt.   Spilar í báðar áttir, fluorescent VU mælar og teljari.

Ég fékk eitt svona í hendur með bilað capstan system og spilaði ekki.   

Einnig voru báðir spólumótoranir (reel motors) með rangt offset þannig að tape rann ekki rétt.

Lagfæring gekk vel og ég lukkulegur.

Íhlutir í Pioneer RT-909

Maggi 

Pioneer PL-12D Plötuspilari

Pioneer PL-12D

Plötuspilara eins og þessum, var ég að hjálpa á lappir.   

Gott eintak og vel með farinn.  Smíðaður 1972.    Nánast ekkert plast notað    Tregða í mótor og frávik í armlyftunni var það sem var að hefta hann.

4-póla Async motor eins og tíðkaðist á þessum árum.   Hér var gert ráð fyrir að smyrja legurnar í mótornum og eru 2 plastslöngur með einhvers konar kveik til þess.     ( sitthvor dropinn á ári! )

Íhlutir í Pioneer PL-12D

Maggi