Telefunken Allegro 5183

Vandað lampaútvarpstæki með e.k. Stereo Audio magnara.    Ekki eins lampar í sitthvorri rásinni og mismunandi Audio tíðnisvörun milli rása.

Smíðað um 1961.

Ekkert FM Stereo Multiplex í tækinu.   

Þessir lampar eru notaðir hér.

  • ECC85
  • ECH81
  • EBF89
  • EBC91
  • EL84
  • ECL86
  • ECC83
  • EM84

Sony TC-D5

Sony TC-D5

Ferða-kassettutæki frá Sony.   

Hér eru gæðin umfram flest í svona tækjum.   Alveg þétt-pakkað og þungt.   Hér er sko ekki hlaupið að viðgerðum.

Þykktin á tækinu er þvermálið á D-cell rafhlöðu.   Það eru tvær slíkar notaðar.

Maggi

Yamaha K-850

Yamaha K-850

Flott og stílhreint kassettutæki frá Yamaha.   Vel byggt og endingargott.   

Að vísu eru fjórar reimar í því.  Dálítið maus að skipta um þær.

M.