
Stereo Kassettu Upptökutæki – Portable
Ekki alveg eins pakkað og önnur svona tæki frá Sony en samt vel fyrir komið
Hér þurfti að lagfæra Rec/Play skiptarann og skipta um allar reimar.
Reimar í þetta tæki
Gekk vel.
Maggi

Verslun og vefverslun, Íhlutir og smávörur. Viðgerðir á hljómtækjum, Yfirfærslur mynd- og hljóðefnis á stafrænt form, Smíðar og hönnun hljómtækja.

Reisulegt Kassettutæki frá Marantz. Þetta tæki var frábrugðið öðrum kassettutækjum að það gat tekið upp og spilað á tveimur hröðum.
4.75 cm/sek sem er normal og á 9.5 cm/sek. Þannig náðust talsvert betri upptökur en helmingi styttri en venjulega og fæst tæki höfðu/hafa þennan fídus.
Hér þurfti að skipta um þétta í spennugjafanum, laga Bias stillingar og head azimuth. (hausa-halla)
Fínt á eftir
Maggi

Eiginlega næstum flottur magnari frá Philips. Þeir voru eitthvað að feta sig á þessari braut á þessum tíma.
Dálítið ruglingslegur að innan og Philips ættarmótið augljóst.
Þessi var með bilaða straumstýringu og óhrein stilli.
Tókst býsna vel til.
Maggi