Pioneer RT-1020L

Pioneer RT-1020L

Mjög frambærilegt og fallegt tæki frá Pioneer.  framleitt á árunum 1974 – 78

Þetta er á viðgerðarborðinu núna.

Þriggja mótóra og tveggja rása en getur spilað 4-rása band tekið upp í slíkum græjum.   Getur ekki tekið upp 4 rásir.

Hér erum við að eiga við bremsurnar og slit í mótorlegum.   Einnig þarf ég að skoða reimarnar.    Svo er eftir að fara í gegn um magnararásirnar, Bias ofl.

M  

Pioneer CT-F7070

Pioneer CT-F7070

Alveg ágætt kassettutæki frá Pioneer.   Smíðað um 1976-78. 

Kassettumekaninsminn vandaður en þarna eru snertitakkarnir ekki almennt komnir í tækin.

Skýr og góð afspilun í þessu tæki.

Hér þurfti að laga Rec / Play skiptarann og skipta um capstan reimina

FBM7.8 

Maggi

Pioneer SA-710

Snotur magnari frá Pioneer.   Skemmtilega hannaður og rúmt um íhluti.  Er með Flúrocent display.

Í honum þurfti ég að skipta um þétta í straumstýringunni og yfirfara mikið af lóðningum.  Að auki þurfti að skipta um inngangsþétta við RIAA magnarann sem voru þess valdandi að þar var mikil 50Hz truflun.

Útgangar í þessum eru: