2TB Minnisdrif / lykill

Þetta er Minnisdrif eða lykill sem ég er að prófa að taka inn og eiga á lager.    Þessi sem ég tek til prufu er 2TB og ætti því að geta tekið stór afritunarverk.

Á eftir að sjá raunverulegan les og skrifhraða og hvort geymslumagnið sé eins og lofað er.

Komið í hús,  í Nov 25,  Fyrstu prófanir eru ekki alveg eins hagfelldar og ég vonaði.  Leshraðinn er ágætur en skrifhraðinn síður.   Hann er dálítið rykkjóttur og dettur í núll á milli.      Hagar sér misjafnlega eftir því hvers konar USB-port þú ert að nota.   (Hvítt eða blátt)

Eftir prófanir sé ég að þetta er fölsuð vara,  þetta drif er ekki nema 64GB en þykist vera 2TB.   Ég notaði forrit sem heitir ValiDrive frá Gibson Corp til að fullreyna það.    Hér er skjámynd af niðurstöðunni.

Er búinn að fjarlægja af lager,   Svona gerum við ekki!

Maggi

Brimar lampar

 

Brimar er gamalt firmanafn á lömpum.   Nú hafa aðilar í Bretlandi tekið sig til og eru að endurvekja þá starfsemi.  Við skulum fylgjast með hér.  

Það er frábært að það sé til hópur fólks sem er tilbúinn að leggja þetta á sig.

Hér má sjá meira um þetta verkefni.  

Ég á meira að segja nokkra lampa með þessu logói – gömul framleiðsla.

Ég ætla að prófa hvernig þeir koma út.  Tek nokkra í prófanir.

EL34 og EL84 eru algengir lampar í útgangsstigum gítarmagnara sem og í heimagræjum. 

Maggi

Breytingar

Nú í morgun ( 14. júní) fékk ég að vita það að starfskraftar mínir hjá Sveitarfélaginu Árborg eru afþakkaðir og starfi mínu þar sem kerfisstjóri til nærri 12 ára, því lokið.

Félagar mínir á deildinni eru í sömu súpu.   Þetta heita víst skipulagsbreytingar.

Ég sé það hins vegar sem tækifæri til að geta sinnt starfseminni hér eins og vera ber.   Ég mun einhenda mér í að þjónusta viðskiptavini mína af bestu getu og ætla að endurskipulegga aðstöðuna og taka skúrinn alfarið undir starfsemina.

Eins og flestir geta gert sér í hugarlund eru dagarnir erfiðir.   Þegar svona löguðu er skellt framan í mann og fyrirvarinn er enginn – sveiflast maður frá reiði yfir í uppgjöf á víxl.   Eitthvað gleymdist illilega í framkvæmd mannauðsstefnu Sveitarfélagsins Árborgar, þegar kom að okkur.

Ég vona að innan fárra vikna verði rekstur hér kominn á skrið.   Ég er þakklátur fyrir sýnda biðlund og þolinmæði.  Flestir ef ekki allir viðskiptavinir okkar gera það nú þegar.  Það er þakkar vert.

í ágúst 2022.   Ég er á kafi í að innrétta skúrinn.  Mála veggi og setja upp nýjar innréttingar.  Ég er nú að horfa á mánaðamótin næstu að byrja aftur.    Ansi mörgu sem þarf að koma heim og saman.

Náði nú ekki að komast í gang um mánaðamótin.   Ég vinn eins og ég get til að koma þessu áfram. 

Nú ( 19 sept. )  er ég búinn að setja upp rekka fyrir upptökugræjurnar og er byrjaður að yfirfæra aftur.   Verkefni í gangi.

Nú vantar mig bara að græja viðgerðavinnuborðið og koma þeirri aðstöðu haganlega fyrir.  

Nú, í október 2022 er ég að komast af stað – eitt og annað eftir en það kemur. 

Nú ætla ég að hætta að hugsa um tíma minn hjá sveitarfélaginu og viðskipti mín við fólk sem þar ræður.      Horfi til betri tíðar. 

kveðja,  Maggi