Við vorum að fá til okkar sendingu af Tactical rofum sem eru afar smáir, einungis örfáir mm á kanta. Þeir eru talvert notaðir í tækjum þar sem pláss er af skornum skammti. Ég hef orðið var við að þá hefur vantað.
Verða hér á lagernum

Verslun og vefverslun, Íhlutir og smávörur. Viðgerðir á hljómtækjum, Yfirfærslur mynd- og hljóðefnis á stafrænt form, Smíðar og hönnun hljómtækja.
Fyrsta síðan sem fólk sér.
Við vorum að fá til okkar sendingu af Tactical rofum sem eru afar smáir, einungis örfáir mm á kanta. Þeir eru talvert notaðir í tækjum þar sem pláss er af skornum skammti. Ég hef orðið var við að þá hefur vantað.
Verða hér á lagernum

Svona test – prototype prentplötur eru að bætast við á lagerinn. Mjög hentugt ef verið er að prófa einhverja rás eða maður er að redda sér.
Með punktum en ekki strippum. (ekki Vero stripboards)
millibil milli punkta er 2.54mm og þykkt plötu er 1.6mm
Maggi
Með yfirhalningu er magnarinn nánast gerður eins og hann var nýr.
Ýmsir íhlutir í honum eldast verr en aðrir. Þar eru helst að nefna electrolyt þétta sem eitthvað spennuálag er á, t.d. í filteringum og þvílíkri notkun.
Electrolyt þéttar í Signal-path halda sér, sumir hverjir, betur.
Þéttar framleiddir í dag eru í sumum tilfellum, (ekki öllum) betri en þeir gömlu. Þess má líka geta að allir electrolyt þéttar í tækjum sem ekki eru í notkun um langan tíma, geta skemmst.
Stundum er skipt um transistora, sérstaklega framarlega í magnaranum vegna suðeiginleika. Sumar gerðir transitora suða meira en aðrar.
Skipt er um s.k. tantalium þétta („electrolyt þéttar í blobbu“) sem gjarnan eru með fremstu íhlutum í hverri mögnunareiningu. (viðkvæmt merki)
Stóru filterþéttarnir í spennugjafanum eru sérstaklega skoðaðir. Þaðan fær jú magnarinn aflið. Þeir mega ekki missa rýmd. Þá getur farið að vanta „úmpfið“ í magnarann. Að sama skapi þarf að skoða spennustýringar (reguleringar) í spennugjafanum, þar er oft nauðsynlegt að skipta um transistora.
í öllum tilfellum þarf að fara yfir og endurnýja lóðningar. Sérstaklega þarf að fara yfir útgangstransistorana vel og allt sem þeim tengist. Alls staðar sem mikil straumhögg eru í rásum er hætta á að lóð-tinið gefi sig. Þar þarf að hreinsa upp með sog-þræði og lóða upp á nýtt.

Að framkvæma þetta verk krefst talsverðar kunnáttu og leikni í rafeindafræði.
Þetta er gert í nokkrum verkþáttum. Alltaf virkniprófað milli þátta. Hver virkniprófun getur varað í allt að tveimur tímum.
Höfum í huga að frá blómatíma svona almennilegra magnara, voru hönnuðir oft býsna glúrnir að finna góðar lausnir og velja íhluti vel.
Ég er ekki fylgjandi þeirri skoðun sumra að „re-cappa“ alfarið. Það þarf ekki alltaf að skipta út þéttunum. Þetta vil ég meta í hverju tilfelli.
Maggi