Í dag bættust á Lagerinn, skemmtilegir minnislyklar. Þeir eru ekki úr plasti heldur Hlyns-við. Virkilega flottir og eigulegir.
Taka 128GB af gögnum þannig að oft get ég sett minni afrit á þá.
Ekki skammar upp á að þeir eru sérmerktir.
M.

Verslun og vefverslun, Íhlutir og smávörur. Viðgerðir á hljómtækjum, Yfirfærslur mynd- og hljóðefnis á stafrænt form, Smíðar og hönnun hljómtækja.
Fyrsta síðan sem fólk sér.
Í dag bættust á Lagerinn, skemmtilegir minnislyklar. Þeir eru ekki úr plasti heldur Hlyns-við. Virkilega flottir og eigulegir.
Taka 128GB af gögnum þannig að oft get ég sett minni afrit á þá.
Ekki skammar upp á að þeir eru sérmerktir.
M.
Ég hef verið að nota yfirfærslugræju sem tekur 3″ og 5″ kvikmyndaspólur án vandkvæða og skilar afurðinni á mpeg formi.
Ég er hins vegar ekki fyllilega ánægður með upplausnina og gæðin. Af þeim ástæðum hef ég ákveðið að hafa 35% afslátt af uppsettu verði í gjaldskrá fyrir þessa gerð miðla.
Það sést fyllilega hvað er á kvikmyndunum en er eiginlega bara ekki alveg nógu gott, að mínu mati.
Minningarnar hins vegar eru þarna þó gæðin standist illa nútímaviðmið.
Maggi
Til að muna hvernig LED díóður eiga að snúa.
LED stendur fyrir Light Emitting Diode. Allar díóður gefa frá sér einhvers konar ljós með forward straumi, mis mikið en flestar annars konar díóður eru í svörtu húsi og ekkert sést.
LED í dag eru þróaðar til að nýta þennan ljóseiginleika.

Allar LED díóður þurfa straumtakmarkandi viðnám í seríu, hvort sem þær eru tengdar í seríu eða hliðtengdar.
Hér er hlekkur til að reikna viðnámin.