Ég er búinn að setja saman einn af þessum. Lampa-headphone Amp og Hybrid útgangur.
Hann fór saman i einni bunu og var settur í gang og virkar alveg eins og engill.
Hann er með tvær 6J1 pentóður sem inngangsstig sem keyra tvær LM1875 Magnararásir fyrir hátalara. Þær eru nánast í „Starve“ Mode vegna þess hversu plötuspennan er lág. Ef maður tengir headphone í tengið er þetta eingöngu lampamögnun. Þá eru Ic rásirnar ekki notaðar.
Ég var alveg hissa hvað hann hljómaði vel. Þetta var bara gaman
Hann þarf 18V-0-18V AC keyrslu-spennu. (spennir)
Maggi

Þessa gerð spennugjafa hef ég tekið til prófunar og í sölu ef hann kemur vel út.
Mikið af nýjum lömpum í dag eru framleiddir í Rússlandi. Nú sýnist mér að minn helsti lampabirgir í USA hafi skrúfað fyrir sölu á lömpum sem framleiddir eru í Rússlandi. Eru hreinlega ekki til sölu eins og er.