
Þetta er kraftmagnari frá NAD – smíðaður í Kína.
Öflugur og duglegur.
Hann er með sk. power envelope system og því flókið að lagfæra ef úr lagi gengur. Rásateikningarnar sem fylgja honum eru mikið torf og ekki fyrir óvana að rekja sig í gegn um.
Þessi sem var hér var með bilaðar straumstýringar við aflmagnarann. Hlutar hans ganga dálítið heitir og það olli vandræðunum.
Útgangar í þessum eru:
í hvorri rás
- 2SA1943 x3 í hliðtengingum
- 2SC5200 x3 í hliðtengingu
Aðrir varahlutir

Í dag bættust á Lagerinn, skemmtilegir minnislyklar. Þeir eru ekki úr plasti heldur Hlyns-við. Virkilega flottir og eigulegir.
Fallegur magnari frá Kenwood framleiddur 1978 – 81. Hér er vel hugað að skermingum og jarðbindingu eininga. Phono RIAA einingin er á brettinu aftaná þar sem tengin eru. Hún er sérstaklega skermuð af.