Pioneer SA-8800

Glæsilegur fulltrúi frá Pioneer,  frá 1976.    Dual transformer uppsetning / supply.   Allt þétt smíðað og vandað.

Þessi sem ég fékk í hendur var með púffaða útganga.

Sjáum hvernig gengur.

Útgangarnir í honum

  • 2SC2525 x4
  • 2SA1075 x4

Maggi

 

Marantz 1090

Flottur magnari og eigulegur frá Marantz.   

Hér halda þeir sig við symmetríuna á framhliðinni.   Allt í balans.

Gaman að sjá hvernig þeir nota kæliplötuna fyrir útgangana til að skerma af aflspenninn.

Hér voru nokkur þéttaskipti og lóðningavandamál auk óhreininda í skipturum.

gekk vel.

Maggi

Pioneer SA-6300

Pioneer SA-6300

Pioneer SA-6300   frá 1976    

2 x 18W

 

 

Ég er búinn að eiga einn svona frá upphafi.   Keypti hann eftir sumarvertíð á Vestmannaeyjum, þá splunkuný framleiðsla.    Keyptur af Ragga Sjonna þegar hann var með svona búð í Hressó á Vestmannabrautinni.

Einu sinni bilað.   Er enn í reglulegri notkun.

Helsti styrkur þessa magnara er einfaldleikinn.   Rúmt um alla íhluti og vel hannaður.

Íhlutir í Pioneer SA-6300

  • Afriðilsdíóðurnar:    1N5404
  • Rafvökvaþéttar 63V
  • Útgangarnir:     2SA488A og 2SC789A
  • RIAA magnararásin:   HA1452W

Maggi