Sony TC-D5

Sony TC-D5

Ferða-kassettutæki frá Sony.   

Hér eru gæðin umfram flest í svona tækjum.   Alveg þétt-pakkað og þungt.   Hér er sko ekki hlaupið að viðgerðum.

Þykktin á tækinu er þvermálið á D-cell rafhlöðu.   Það eru tvær slíkar notaðar.

Maggi

Yamaha K-850

Yamaha K-850

Flott og stílhreint kassettutæki frá Yamaha.   Vel byggt og endingargott.   

Að vísu eru fjórar reimar í því.  Dálítið maus að skipta um þær.

M.

 

Grundig TK-248

Grundig TK-248

Eldra Reel-Reel frá Grundig.    Sennilega frá um og fyrir 1967-1973. 

Talsvert flókinn mekanismi eins og algengt var á þeim tíma.

Í þessu tæki eru margir germaníum transistorar sem erfitt er að fá nú til dags og ef einhver pikkles er í elektrónikkinni er þetta erfiður dans.

Þótti flott á sínum tíma en eldist ekki eins vel og sum önnur R/R

Maggi