Kenwood KA-7300

Kenwood KA-7300

Mjög fallegur og vandaður magnari frá Kenwood.   Smíðaður  1975-78. 

Er með Dual Power supply og tveimur spennum.

Kraftmagnarahlutinn notar Hybrid útgangsrásir    TA-80W

Hér sjáum við innvolsið.   Symmetrían í hávegum.

Í þessum þurfti ég að laga straumstýringu / spennugjafa og skipti um þétta í RIAA Phono Amp hlutanum

KA-7300 innvols

Pioneer PL-Z93

Pioneer PL-Z93

Hér sjáum við seinni tíma plötuspilara frá Pioneer.  Hér er framleiðandinn í miklum sparnaðarhugleiðingum og einhverjir álitu að plöturnar væru á útleið.

Hann er allur úr plasti nema plattinn sem er úr áli og stillingar með eins konar átomat.

Mikið var selt af þessum á sínum tíma og nokkrir komið hingað.   Mjög oft efstur í Pioneer græjuskápum

DC mótor og reimdrifinn.   12V ytri spennugjafi nauðsynlegur

Reimin í þennan:    (og fleiri í PL-Z seríunni)

FBS22.4