Quad 405 Kraftmagnari

Quad 405

Þetta er Quad 405 kraftmagnarinn.   Engin stilli og ekkert nema fín gæði.   Byggður eins og skriðdreki og massívur á alla kanta.   Hann er með gríðarlega öflugan spennugjafa og fína straumgetu.    Hönnunin gengur út á hana. 

Þessi sem var hjá mér var með ónýta stóru þéttana í spennugjafanum.   

Svo þarf ég að smíða millisnúru í 4-pinna DIN tengið

4-pinna DIN tengið:   

Maggi

Technics SA-8000

Technics SA-8000

Glæsilegur og flottur 4-rása fulltrúi frá Technics.   Er frá þeim tíma sem menn voru að gera tilraunir með 4-rása vinilplötur.   Kölluðu þá disc.  

Þetta er tækni sem aldrei náði flugi – var bæði flókið og viðkvæmt.

Í þessum magnara er gríðar flóknar mótunar og afmótunarrásir fyrir þetta.   Segja má að hann sé smekkfullur af electrónikk og rafeindajukki!

Óhreinindi í stillum og skipturum voru að hrjá þessa elsku.

Hægt er að brúa hann og taka þannig tvo kanala fyrir hvora rás.   Gefur meira afl ef ekki er verið að nota 4 rásirnar.

Maggi

Martin Logan Ascent

Martin Logan á stofugólfinu

Ég var að fjárfesta í gömlum draumi. 

Lét af því verða að eignast Martin Logan Electrostatiska hátalara af gerðinni Ascent.   Þeir eru um 170 cm á hæð.   Klettþungir.

Uppgefnir 200W,  35-22.000 Hz

Þetta par er með seríunúmer hlið við hlið og hafa því komið úr sömu framleiðslulotu.

Soundið er guðdómlegt við fyrstu prófanir.   

Ég á von á að það verði enn betra þegar ég verð búinn að laga heimasmíðaða lampamagnarann minn og keyra þá á honum.

Svona hátalarar eru gríðarlega þungir í keyrslu enda með Impedance undir 4 ohmum.   Ekki margir transistormagnarar ráða vel við það.   Að auki hallar impedancekúrfan með hækkaðri tíðni og impedance-inn þar með lækkar enn.

Hér sjást þeir nýlega komnir inn á gólf að jafna sig eftir ferðalagið úr höfuðborginni.

Martin Logan Ascent Flyer

Maggi