Martin Logan Ascent

Martin Logan á stofugólfinu

Ég var að fjárfesta í gömlum draumi. 

Lét af því verða að eignast Martin Logan Electrostatiska hátalara af gerðinni Ascent.   Þeir eru um 170 cm á hæð.   Klettþungir.

Uppgefnir 200W,  35-22.000 Hz

Þetta par er með seríunúmer hlið við hlið og hafa því komið úr sömu framleiðslulotu.

Soundið er guðdómlegt við fyrstu prófanir.   

Ég á von á að það verði enn betra þegar ég verð búinn að laga heimasmíðaða lampamagnarann minn og keyra þá á honum.

Svona hátalarar eru gríðarlega þungir í keyrslu enda með Impedance undir 2 ohmum.   Ekki margir transistormagnarar ráða vel við það.   Að auki hallar impedancekúrfan með hækkaðri tíðni.

Hér sjást þeir nýlega komnir inn á gólf að jafna sig eftir ferðalagið úr höfuðborginni.

Martin Logan Ascent Flyer

Maggi