Þessir eru alveg í sérflokki.
Smíðaðir frá 1957-1985 yfir 54 þús stykki. Nánast óbreyttir allan þann tíma. Það segir eitthvað um framsækni hönnunarinnar.
Þeir eru alfarið electro-statískir. Engir seglar eða resonance box eða kassi. Bara háspennugjafi, háspennu-hátalaraspennir og statiskar filmu-membrur sem titra. Hann skiptist í einn þrefaldan treble panel og tvo bassapanela. Opinn að aftan en með dempandi filter þar, sérstaklega aftan við treble panelinn. Algerir gimsteinar.
Vocalarnir eru á upphækkuðum gæðum.
Það er ekki fyrir hvaða magnara sem er að ráða við þessa. Eiginlega verður það að vera lampamagnari. Það er út af Inngangs-Impedance þeirra. Hér má heldur ekki keyra upp í afli.
Maggi