NAD 2200

NAD-2200

Stereo Power magnari frá NAD.

Í einhverjum auglýsingabæklingum varðandi þennan magnara um útgangsafl í wöttum,  stóð:    „Enough“

Þessi er byggður á tækni sem NAD notaði talsvert sem hér nefnist power envelope system.   Þá er spennugjafinn með tvær dual spennur og er hærri spennunni kúpplað inn ef þörf er á extra miklu afli.    Sumum fannst þetta orka tvímælis og flækja málin.

Erfitt getur reynst að laga útgangsstigið ef það bilar.

Allavega er hann gríðarlega öflugur kraftmagnari.

ég á einn svona.

Maggi

Tandberg TCD 330

Tandberg TCD-330

Vandað kassettutæki frá Tandberg.   Rosalega fínn mekanismi í kassettuhlutanum.   Þriggja hausa,   Upptökuhaus, spilunarhaus og útþurrkunarhaus.    Sérstakt að kassettan fór í „á hlið“

 

Tæki, eins og þetta,  var hjá mér með vandamál í Bias Osc.  Upptökur gengu því illa. 

Viðgerð tókst vel.

Maggi

Pioneer RT-707

Pioneer RT-707

Glæsilegt tæki frá Pioneer.   Allt direct-drive,  engar reimar nema á teljaranum.    Analog mælar.  Spilar í báðar áttir.

Tækið sem hér var, var með hraðavillu og óhreinindi í skipturum. 

Sjá Pioneer RT-909

Maggi