Kenwood KX-W6030

Kenwood KX-W6030

 

Þetta er tveggja kassettu tæki frá Kenwood.   Dálítið farið að halla undan fæti í framleiðslunni og útvistun verkefna áberandi

Komst í lag eftir reimaskipti og viðgerð á spennugjafanum fyrir display.

M.

Pioneer SA-8100

Pioneer SA-8100

Stereo magnari frá Pioneer.

Alveg glæsileg smíð og virkilega eigulegur.     Talsvert lagt upp úr viðamiklum skermingum yfir tónstillihlutann.

Þessi þurfti bara smá handayfirlagningu.

Hann hefur þessa útganga

  • 2SD370 x2
  • 2SB530 x2

Maggi

 

NAD 1600

NAD-1600

Þetta er formagnari – útvarpsmóttakari frá NAD

Firna góð smíð, eins og búast má við frá NAD en sumum finnast tækin frá þeim á þessum tíma dálítið flókin.    Gæðin eru hins vegar óumdeild.

Þessi sést oft með t.d. NAD-2200 kraftmagnaranum.

Ég á einn svona.

M.